

Rafvélatækni ehf. er löggiltur rafverktaki sem sérhæfir sig í véla- og iðnaðarrafmagni.


Um Rafvélatækni
Rafvélatækni ehf. var stofnað í janúar 2026 af
Leó Snæ Róbertssyni, rafiðnfræðing, meistara í rafvirkjun og rafvélavirkjun.
​
Rafvélatækni er löggiltur rafverktaki sem sérhæfir sig í véla- og iðnaðarrafmagni. Þó sérhæfing okkar liggur á því sviði, skorumst við ekkert undan öðrum almennum raflagnaverkum og erum við fullfærir til að takast á við öll almenn raflagnaverkefni.
​
Rafvélatækni leggur áherslu á fagleg vinnubrögð, framúrskarandi og persónulega þjónustu.
​
​
Um eigandann
Eigandi og stofnandi Rafvélatækni er Leó Snær Róbertsson. Leó er rafiðnfræðingur að mennt, með meistarabréf í rafvirkjun og rafvélavirkjun. Leó hefur unnið við rafkerfi í iðnaðarumhverfi, vélum og tækjum síðan hann hóf störf sem rafvirki og gert það sjálfstætt nær allan sinn feril.

Þjónustur okkar

Almennar raflagnir
Við bjóðum upp á alla almenna raflagnavinnu fyrir heimili, húsfélög og fyrirtæki.
Lýsing, hleðslustöðvar, tenglar, töfluskipti, netlagnir og svo framvegis.

Bilanagreiningar og viðgerðir
Við bilanagreinum og gerum við fyrir þig. Bilanir á heimilum eða verksmiðjum, skiptir engu máli.

Stjórnskápa og töflusmíði
Rafélatækni getur smíðað stjórnskápa og töflur eftir þínum þörfum og hönnun.

Hönnun stjórnkerfa og forritun PLC véla
Rafvélatækni býður upp á vandaðar teikningar fyrir stjórnkerfi rafbúnaðar.
Rafvélatækni býður einnig upp á forritun iðntölva.
